fimmtudagur, febrúar 28, 2008

Það er ekki hægt að ímynda sér löngun mína til þess að segja fokk it og fara út í sólarland núna eða bara til Sigga í LA...er gjörsamlega að skíta upp á maga í þessum kulda en annars ætti maður ekkert að vera hissa í þessum kulda..það er nú bara febrúar og við búum á Íslandi.

Þá er maður kominn á nýjan vinnustað...seljandi parket og þambandi á trélími...sem er algjör fun....ég er allavega að meta það, betra en að hlusta á útlendinga rövla yfir interneti og of háum reikningum...
Ekkert markvisst í fréttum annars...nema það að sigginn er farinn út og ég eget ekki beðið eftir sumargríninu og glennsinu....

þriðjudagur, janúar 08, 2008

Úfff.....hver hefur ekki lent í því að ætla ða byrja á e-h en gjörsamlega vera sekkur og ekki geta komið sér af stað...ég er búinn að vera þannig síðustu mánuði vegna möppu sem ég er rétt byrjaður á svo bara skilið eftir heilasellurnar í pernod-staupi á kaffibarnum og ekki komist í gang eftir það...spurning hvort maður sleppi pernod-inu og detti í eitthvað annað.

Mega vinnutörn í gangi og hefur JB aldrei verið í jafn miklum vinnuham og til í flestar vaktir enda fínt að fá smá money til að dempa niður skuldunum og er markiðið sett á að vera kominn í verulega góð mál í september og svo byrja að safna eftir það.

Steikt röll búin að vera síðustu helgar og ófá skiptin sem maður hefur lent á stað sem að maður hefur séð með illum augum áður og hefur ekkert breyst eftir þessa helgi...bara fyndið mæli samt ekki með því.

fimmtudagur, janúar 03, 2008

ÁRIÐ 2008....SÆLINÚÚÚÚ...

Hef tekið þá ákvörun að árið 2008 verði tryllingur og verður hver einn og einasti mánuður skemmtilegur meira svona í líkindum og desember mánuður var í lok árs 2007...
Langt síðan að ég hef verið jafn spenntur fyrir nýju ári og nóg um að vera framundan...

Hef ákveðið að velja Sekk ársins 2007 stelpuna með perslufestina...verst að Maggi er sá eini sem sá hana ásamt mér en hún var engu að síður sekkur ársins...
Nú hefst smá keyrsla í vinnu og safnað inn e-h af pening og reynt að vinna í möppu með því sjáum hvernig það gengur.

Áramótin voru eins og ávallt M.E.G.A. sekkur...fór á staði sem ég hef aldrei dottið í hug að fara á þ.e.a.s. Rex og apótekið...mig hefur aldrei liðið eins mikið og outsider þegar ég mætti þarna samt fyndið að sjá Q Tarantino með sinn 8 gallona haus og eitthverja keðju sem girti hann af þvælandi e-h steypu í dömum sem að voru jafn heillandi og borðtuska....

þriðjudagur, desember 04, 2007

SEKKURINN Í ÁR ER.....

Hef ákveðið að tilkynni "SEKK" ársins 2007 og vil ég endilega að þeir sem að kíkja hér við og kommentið um hvern þeim finnst að eigi að vera sekkur ársins. Það má vera manneskja eða e-h atvik eða bara hvað sem er.
Tilkynninginn verður svo á gamlársdag.


miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Gleði gleði ekkert nema eintóm gleði...

Eftir peppið frá Dr.PEPPAR þá hef ég ekki verið neitt annað en hamingja.....takk Dr.Peppar...þú ert flottur strákur og það er ekkert að fara stop me know ef þú skilur hvað ég á við.

Allavega hef verið síðustu daga að klára allskyns skilaverkefni og þar af leiðandi horft á fleiri þætti sem fara svolítið í mig og nýjasta æðið hjá Dr.Phil er að bomba fólki í svo lygamælis-test sem ég virkilega held að sé algjör sekkur og virki ekki fyrir skít...svo fær hann e-h goverment official sem á að vera besti í landinu í lygamælatesti og ber nafnið James Skeeter og er algjör mörður til útlits...allavega verulega fyndið að sjá þessa brjálæðislega steiktu suðurríkjamenn vera eins og apa í kringum lygamæli og halda að hann sé heilagur sannleikur og sé e-h æðri máttur frá guði sjálfum. Ef ég á að vera hreinskilinn þá held ég að sjálfur guð horfi niður á þá og blastar Hurricaine Chris-AY BAY BAY....

mánudagur, nóvember 26, 2007

Drullufokkanns, ógeðslega litla ógeðskulda-gráa og viðurstyggðar sker sem ég bý á. Var að keyra stuttan spöl en það tók mig 3falt lengri tíma þar sem að ég lennti alltaf á rauðu ógeðslegu ljósi og lét mig þar af leiðandi missa af mikilvægum fundi svo var ógeðsbarnið sem var að keyra svartan ógeðs ryðsekk við hliðina á mér alltaf að stara inní bílinn á meðan ég var stopp á rauðu ljósi.
Nú væri ég alveg til í að vera á leið út e-h í nám þar sem að fjöldi íbúa væri aðeins fleirri en fokkinn 300þúsund og hvað þá um 100þúsund á höfuðborgarsvæðinu....ógeðslega skíta litla land...maður er alltaf að rekast á sama fólkið og allt er alltaf alveg eins. Umferðin er svo ógeðsleg hérna því að hver einn og einasti íslendingur á bíl og það er umferðateppa alveg sama hvaða tíma dags og Íslendingar eru svo miklir egóistar og gera sér ekki grein fyrir því hvað þeir eru miklir sveitasekkir...úfff ég er að fá tremmakast hérna og mega innilokunarkennd.
Eitt að lokum hvað er málið með Íslendinga og að hanga í verslunarmiðstöðum um helgar allan lið-fokkinn-langann daginn....
Meira segja Larry David fokkar sér upp með jerballs í rassinn...

mánudagur, nóvember 19, 2007


















Einn djúpur
Það er alveg magnað hvað lífið getur boðið uppá mikið twist and turns...allavega mitt...
Mamma mín hefur beðið mig um að skrifa bók síðan ég var lítill og bað mig um að gera eina skáldsögu og gefa sér í fimmtugsafmælisgjöf og var það árið 2005 og ég gerði það ekki...aðal ástæða fyrir því að móðir mín er ólm í að ég skrifi bók er vegna þess hvernig ég segi frá hlutunum og virðist ég skreyta sögurnar en ég segi bara frá eins og ég sé hlutina.
Allavega ég gæti sett saman í eina fáránlega sýru bók ef ég ætlaði að skrifa sögu sem byggðist af stórum hluta um mig...eins mikið egó að það hljómar þá er ég að lenda í fáránlegustu hlutum á hverjum degi. Í dag drap gaur mig ca. 5 sinnum með augnaráði og ég var myrtur einnig nokkrum sinnum um helgina með augnaráði...það er e-h major mannavillt í gangi sérstaklega þegar fólk er farið að segja að ég sé líkur Vigni í Írafár.

Svo hefur maður heyrt að maður velji sér ekki þá sem maður mun eyða lífinu með heldur er það random lið sem maður mun vinna með í framtíðinni og vona ég innilega að við félagarnir stofnum fyrirtæki saman því það væri hreinn unaður að fá að vinna með vinum sem maður hefur þekkt frá barnæsku...má samt alveg vera í fyrirtækinu einn og einn gaur sem er eins og Big Keith í Office hvað þá einn David Brent.

Ég fór að hugsa í morgun á meðan ég var í HTML tímanum um lista um hluti sem fara virkilega í taugarnar á mér og hluti sem ég virkilega fíla og kom það mér á óvart hvað það var miklu auðveldara að finna hluti sem fara í taugarnar á mér frekar en hitt sem kannski segir að ég hugsi allt of mikið um það sem fer í taugarnar á mér heldur en það sem gleður mig sem kannski útskýrir afhverju ég er farinn að vera svona pirraður og á erfitt með að treysta fólki upp á síðkastið (Vó þetta var djúpt, farinn að minna semí á einar hérna í den tid..sorry með það Eistni)

Pirrandi hlutir
10.Þátturinn Numbers er að drepa mig samt horfi ég á hann.
9. Það að Janúar, febrúar, mars og apríl séu að nálgast.
8. Peningamálin mín.
7. Ísland er farið að pirra mig hvað það er lítið og allir þekkjast.
6. Paperköttið á puttanum sem vill ekki gróa.
5. Vinna um helgar.
4. Tungumálaerfiðleikar í vinnu um helgar.
3. Sekkurinn sem var 6pakkaður fyrir rúmu ári síðan.
2. Bakið á mér sem er fokkt svona vægt til orða tekið.
1. Að ég er ekki ennþá byrjaður á möppu.
0. Ciada´s everyday italian.
-1. Veturinn
-2. Svarta akríl málningin er búin og ég get ekki klárað my masterpice
-3. Vantar fresh sneakers.

Þessi listi getur haldið endarlaust áfram ég bara nenni ekki að skrifa meira.

sunnudagur, nóvember 18, 2007

Sukkímon....

Ég hef sagt það áður og segi það aftur, sukkið er komið með yfirhöndina og tími til kominn að snú við blaðinu. Ef ég sést bænum næstu helgi þá skuliði aldrei taka mark á svona pistli frá mér í framtíðinni..sorry með það.
Talandi um bæinn þá fékk ég að heyra það nokkrum sinnum í gær að ég væri líkur Vignir í Íraár þegar ég er með hár...endilega kommentið á það ef þið eruð sammála eða ekki þ.e.a.s. ef e-h aðrir en steinþór lesa þetta blogg...
vil samt fá komment frá þér steini minn.
Allavega...síðustu tvær vikurnar í skólanum og mikið af lokaverkefnum og svo er bara komið af jólabullinu...að sjálfsögðu verður tekið jólamyndamaraþon 1.des með jólaöli og tilheyrandi...ég klikkaði á Scrooged í fyrra en það verður bætt upp fyrir það næstkomandi 1.des. Hef samt tekið eftir því að stöð2 er að fokka upp 1.des reglunni og hefur verið að blasta HomeAlone hverja einustu helgi.
Hver hefur kannast ekki við að vera svona leiðinlega þunnur en ekki sjarmerandi þunnur þá er ég að tala um að maður er glorhungraður en getur ekki étið neinn andskotann og með ógeðs hausverk sem er ekki eins og venjulegur hausverkur heldur svona þokuský yfir heilanum svo þegar maður hallar höfðinu þá er eins og það séu gay hestar að pulla 2ble dick-intration en ég var þannig í dag og var að vinna og í Smáraógeðslind af öllum stöðum sem er vægast sagt hreint helvíti...hljóp á milli afgreiðslna inná klósett í væna gall-skvettu en það góða við að vera vinna í smáralind um helgar angandi af vínlykt er það að aðeins pólverjar og litháar eru viðskiptavinir um helgar og eru meira og minna allir í glasi þannig að þetta er í rauninni eins og eitt stórt partý á Katalínu Hamraborg...

Dæmi um týpískar setningar í afgreiðslu við pólverja og ég er ekki með neitt hate eða rasisma þetta er bara svona "Æ hav problúm vit intjérnet" svo kunna þeir ekkert meira í ensku og ekki stakt orð í íslensku nema "bara" og "kannski" svo verður allt brjálað því að pöntunin fer vitaust í gegn og þeir fá ekki net eða heimasíma í marga mánuði en á vanalega að taka ca 7daga.
Fyrirtæki! ráðið pólskt fólk í vinnu til þess að túlka...sparar öllum tíma og losnar við leiðindi.
Jæja ætla að tjilla aðeins á biturleikanum og segja þetta gott í bili.

laugardagur, nóvember 17, 2007














Föstudagur til fræðslu......

Ekki það að ég sé að fara að fræða ykkur um einhvað...
Ákvað að ekki fara í drykkju og svínerí þennan föstudag og ákvað að vera heima að slaka á og klára nokkur verkefni. Hvernig væri að sjónvarpsstöðvarnar hefðu einhvað almennilegt fyrir þá drykkjusjúklinga sem ætla að vera heima og slaka á...það hefur ekki verið neinn andskotinn til þess að horfa á í allt kvöld, að vísu er maður heppinn að hafa internetið því maður getur séð allan andskotann þar.

Skrifið kvikyndið

Skoðið Kvikyndið